Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: silja ruth gunnarsdóttir
  • Staður: hafnarfjörður

Innskráningar kubbur

Atburðarteljari

Nýtt líf á nýjum stað

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Small Kitty Falling Asleep Funny Images, Aliens are everywhere Funny Images, Doubt 2 Funny Images, Tooth fairy Funny Images, Causing Accidents Funny Images, School bus in India

Klukkan

Undirsíðukubbur

Leikur dagsins

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

DESEMBER

01. desember 2008 klukkan 17:11

Vá bara komin des strax,, kannski spurning um að henda inn smá bloggi,,??!!!
Alveg hreynt ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða,Surprised fynnst svo hrykalega stutt síðan við fórum í jóla frí til íslands síðast.
Enn já já það er bara svo sem allt fínt að frétta af okkur hérna útlandinu, nema það er nátturulega bara svona hjá okkur eins og öllum öðrum þessi bevítans kreppa að fara með okkur,,,, ennn við höfum bara tekið þá ákvörðunn að ullaTongue out bara framan í hana og vera í svolittlum pollýönnu leik hmmm.
Kannski spurning um að eyða þá bara ekkert fleyrri orðum í það ,,,,,.
Ég er ennþá bara að bíða eftir bevis frá skólanum mínum um að ég sé búin með námið mitt þannig að ég hef ekki ennþá getað byrjað að vinna því að ég þarf að frammvísa bevisinu ,,, svona er þetta bara hérna, að tekur allt svo óralangann tíma,, og ég kannski ekki alveg sú þolinmóðasta HEHE ennnn er greynilega að skána mikið Wink.
Hafsteinn stendur sig eins og hetja í sínu námi, rosa duglegur alltaf.
og svo er það einkasonurinn hann er nátturulega bara algjör perla sko ,,, er orðin svona nokkuð viss um að hann verður leikari eða enhv svoleiðis því það sem krakanum dettur í hug er ótrúlegt,,
Hann kom td inní stofu um daginn búin að líma framan á sig miða sem á stóð amerikans next top model, svo var hann búinn að setja lokið af óhreinataus körfunni(stór bast karfa)á hausinn á sér þannig að það var eins og hann væri með risa stóran hatt á hausnum,,,, svo stillti krakkinn sér fyrir framan sjónvarpið og byrjaði að pósa og sko með öll smá atriðin á hreinu alveg framm í littla putta HAHAHAHHA ég hló mig nátturulega vittlausa, svo lok náði ég að stynja upp hvað í óskupunum hann væri að pæla ?,, : nú þetta er það sem þú nennir alltaf að horfa á HAHAHHA vantaði greynilega athyggli greyið ,,,,,,bara rassgat,,,,,,
Svo er hann nokkrum sinnum búin að koma hingað heim með broddgelti og verður sko höörku fúll þegar ég segi honum að fara út með þá aftur : sko mamma þá ert það þú sem ert að drepa hann sko ha,, ég ætla sko ekki að taka það á mig ef enhv fynnur hann frosin til dauða Laughing
já það er sko hægt að prakkarst ýmislegt.
Hvað á ég að segja ykkur meira,,,,,,, jú ég átti afmæli um daginn ,, rosa gaman,, rosa kósý dagur hjá okkur hérna Daníel og hafstein bökuðu köku fyrir mig og færðu mér morgunn mat í rúmið, svo komu hér góðir gesti í kaffi um miðjan daginn,, annars vorum við bara á náttbuxunum allann daginn alveg ótrúlega næs...
ég fékk svo smá afmælis partý þarna á föstudeginum viku seinna, alveg ógeðslega gaman og mér telst til að það hafi komið enhv á milli 25-30 manns sem mér fynnst bara ótrúlegt sko,,
Jóna og Gunni vinafólk okkar komu svo hingað til okkar í gleðina og voru hjá okkur alla helgina og vá hvað það var yndislegt þau eru nátturulega bara frábær,, sátum hérna svo langt framm á nótt að spjalla og spila á laugardeginum,,,
hmm hvað erum við búin að gera meira,,, ju svo fórum við núna á síðasta laugard í föndur hjá íslendingafélaginu,,, ferlega kósý. Vorum mætt kl 11 á laugard morguninn að mála piparkökur, föndra og fá okkur heitt kakó og smákökur,,,, fórum svo þaðan og kíktum aðeins á jólaljósin og jólaþorpið í fallega miðbænum okkar, vorum svo komin heim um kaffileitið. Þá skellti kella sér bara inní  eldhús og bakaði æbleskiver og gerði heitt súkkulaði ,,, þannig að þetta bara sko alveg jóla jóla dagur hjá okkur, kvöldinu svo bara eitt í að spila og glápa á imbann öll saman í einni hrúgu, svoleiðis er það alltaf á fjölsk kvöldum Wink
Já meira hef ég nú eiginlega ekki að segja í bili ,, nema jú VIÐ ERUM AÐ KOMA Á KLAKANN 14 DES bara rétt tæpar tvær vikur í það .....
aldrey að vita nema að ég nenni að henda inn færslu hérna aftur í vikunni ,,,,,,
bæjó í bili

silja ruth gunnarsdóttir
2 athugasemdir

Stór dagur í dag

09. nóvember 2008 klukkan 16:31

Já í dag er það bleikt
 því að kl 4 í nótt varð hann Daníel okkar stóri bróðir. LaughingInnilega til hamingju elsku Daníel og Elsku Berglind og Helgi,,,,,hlökkum rosa mikið til að sjá littlu prinsessuna

silja ruth gunnarsdóttir
6 athugasemdir

jæja smá fréttir

03. nóvember 2008 klukkan 11:07

Jæja já þá hefur maður loksins tíma til að skrifa nokkrar línur,,,,
já það er nú búið að vera frekar mikið að gera hérna hjá okkur littlu fjölskyldunni í dk,
 svona alveg ýmislegt búið að bralla.
 afmælis törnin byrjuð hjá Daníel, hann er sko í afmælim á hverri helgi og stundum kannski tvö á dag,, HAHAH já nóg að gera íþeim efnum nú svo eru broddgeltirninr enhv órtúlega duglegir að láta finna sig þessa dagana, þannig að maður glímir við suðandi unglin hérna a´hverju degi sem vil fá að ættleiða broddgöllt , sko afþví að ég leifði honum ekki að kaupa slönguna í sumar AHHAHAHA... Laughing

Já svona er þetta, ég er svona að átta mig betur á því með hverjum deginum að hann Daníel kemur nú sennileg ekki til með að standa við það sem hann sagði við mig hérna um árið : Mamma ég ætla sssko ekki að verða sssstór bara alltaf að vera littli ssstrákurinn þinn  , aaahhh það var svo sætt ,,
 Enn nú er hann sem sagt að verða jafn stór og ég ,, eða svona næstum,, verður það að öllu líkindum fyrir 10 ára aldurinn,,
hann er allaveg farinn að nota stærri skó enn ég svo að ,,,,,
Enn já svo er hann nátturulega að verða stóri bróðir,, það fer að styttast í þetta Berglind mínWink og það er sko mikil spenna á þessu heimili og efast sko ekkert um það að hann daníel verður sko besti stóri bróðir í heimi.

Hafsteinn var svo að stríða honum um daginn og spurði hvort að það yrði nú ekki gaman að eiga svo eitt systkyni líka hérna í dk,
hann var nú ekki lengi að svara og sagði jújú ennn mamma vill ekki annað barn, nú !? sagði hafsteinn þá .. já sko mamma vill bara eiga mig , nú hvernig veistu það.. bara ég hef oft heyrt hana segja við vinkonur sínar að hún vilji ekki annað barn,, henni fynnist ég sko bara alveg nóg ,, HAHAHAHHA
fannst þetta rosa gott svar hjá honum.
já annars gengur bara rosa vel hjá Hafsteini í hans skóla fyrir utan smá vesen með hópinn hans, enn ætla nú ekki að fara neitt frekar út í það ...
. og svo er það rúsínan,,, já haltu þér fast

ég er búin með skólann minn....

já ég fór sem sagt í skólann á föstud til að fá ritgerðina mína godkenda,,
svo sit ég þarna inni og er bara að spjalla viðkennarann minn, þá kemur annar kennari inn og er að láta vita að ein stelpan hafi ekki skilað sér í prófið ,,,
,, allveg til að gera langa sögu stutta að þá skellti ég mér bara í prófið,,
 ætlaði að taka 2 vikur í að lesa undir prófið enn bara dreif mig í gallann og upp ,
ekkert búin að lesa aukalega fyrir prófið eða neitt og ég fékk 7 ,, bara rosa sátt með það ,, 7 jafngildir 8,5 - 9,0 í íslenska kerfinu....
Enn já er sem sagt bara að fara niðrí skóla núna og sækja enhv pappíra um að ég sé búin og svo er bara verið að fara að sækja um praktik pláss,,,,
Enn já jæja nú verð ég að fara svo að ég nái á skrifstofuna áður enn lokar,,,,,,,,,,,
bæ í bbili kv silja,, ekki lengur skóla stelpa..Cool

silja ruth gunnarsdóttir
4 athugasemdir

kominn OKT

02. október 2008 klukkan 16:40

Já komin okt,hrykalega er þetta fljótt að líða,,, .
Ætla nú ekki einu sinni að byrja á að tala um þessa helvítis krónu,,Öskrandi,,,
HAHA ég var spurð í skólanum í gær hvort að ég væri kúrdi,, held ég hafi aldrey á ævinni hlegið eins mikið, það var ekki fyrr enn ég dró upp íslenska ökuskírteinið að hún trúði mér, en það er ég líka ljóshærð.

Var að lesa yfir bloggið sem ég skrifaði seinast, UFF vona að þið hafið skilið enhv afþví,,
Ennn já sko gleymdi meira að segja að segja ykkur það að hann Daníel Ísar slasaði sig um daginn, já við fengum bara símtal frá skólanum um að Daníel hefði meitt sig og hann væri svoldið sur,
 já við skötuhjúin brunuðum nátturulega beint uppí skóla til að ath með elsku kútinn okkar. 
Hann sat svo voða stúrinn útí horni þegar við komum,
 hann bar sig nú bara alveg rosa vel smá svona eins og marinn.
Enn mömmu hjartað var enhv að tikka og ég vildi endilega láta kíkja aðeins á hann,, ALLAVEG,,, fórum á skadestuen jamm og biðum þar í 3 tíma dídes,,
(þeir sem þekkja mig vita að ég er kannski ekki alveg sú þolinmóðasta),
hann Daníel er pínku líkur mömmu sinni stundum,já allvega Daníel vildi bara fara heim nennti þessu sko ekki lengur:: mamma það er ekkert að komum bara:
: nei Daníel við erum sko búnin að bíða í 3 tíma, ég ætla að fá þessa myndir :
AHHAHAHAHha já mamma jafn róleg og fiðrildi á fallegum sumardegi, eða þannig sko,,.
, Já fengum svo þessar blessuðu myndir, og jú drengurinn handlegsbrotinn, 
þannig að pjakkurinn var bara hundfúll yfir þessu gipsi ekki hægt að hjóla og bara ekki hægt að gera neitt sko.
 Annars er hann bara góður núna sko, er ekki alveg viss um að hann rati í nýja herbergið sitt því að hann er bókstaflega ekki búin að vvera heima síðan við fluttum.
 Hann fer út kl 7:30 til að vera samferða með strákunum uppað bus stop,
þar hittast nefnilega gaurarnir áður enn þeir fara í skólan aðeins svona að spjalla sko,,svaka töffarar ,
hann kemur svo heim kl 16:15 þá er það að læra og kannski fá sér eina brauðsneið og mjólkurglas, beint út að leika,
 kemur aftur rétt rúmlega 6 í kvöldmat,boðar og fer aftur út til kl 20:15
þá er hoppað í sturtu og bursta tennur og komin í háttinn fyrir kl 21:00
Jamm svona er þetta sem sagt hjá honum Daníel mínum.

Annars er bara lítið að frétta bara brjálað að gera í skólanum bæði hjá mér og Hafsteini og þegar við erum ekki í skólanum þá erum við nátturulega bara að dúlla okkur enhv saman, það var sagt við okkur um dagin að við værum svo sæt við værum alltaf eins og við værum nýbyrjuð saman alltaf að haldast í hendur og enhv knúserí og svona HAHAHAHHAHAKoss kósý það hmm
Já og þið sem eruð að heimata myndir þá meigið þið bara alveg gefa okkur myndavel,, hún væri alveg velþegin á þessu heimili þar sem okkar ákvað að deyja bara 2 dögum fyrir flutninga,,Óákveðinn
þannig a engar myndir fyrr enn ,,uummmmm veit ekki hvenær HEHE
ennnnn veit ekki hvað ég á að skrifa meira fyrir ykkur núna,,
ef það er enhv sérstakt sem ykkur langar að vita um lífið hjá okkur hérna úti að þá er bara setja það í comment eða gestabókina,,, eg er enhv alltaf svo andlaus þegar kemur að því að byrja að blogga,,,, það er nátturulega alltaf enhv spennandi að gerast enn bara kannski fynnst manni þetta orðið svona "venjulegt" að maður er hættur að pæla eins mikið í því , eins og td þegar Daníel og co koma heim með 10 feita froska í fötu og fara svo í kapp hérna í garðinum, eða sjá fíl á leiðina í búðina afþví að það er sirkus í bænum, eða þurfa að hægj á þér á littlu vegunum á kvöldin afþví að það er svo mikið af broddgöltu,,, bara svona td,,,,,, enn já kjúllinn tilbúinn í ofninum,, þarf að fara að kalla á hann Daníel,,,
bæjó í bil

silja ruth gunnarsdóttir
1 athugasemd

Ja hérna ,, sept að verða búinn

28. september 2008 klukkan 19:57

Já, hvað segiði þá ,, kannski kominn tími til að blogga smá og láta vita af okkur hmmm. Ef ég væri þú þá myndi ég hoppa framm og klára að poppa og svona því að þetta verður að öllum líkindum LANGT BLOGG......Glottandi
TILBÚIN/N ??
já ok ,,Ingibjörg Freyja kom til okkar í byrjun sumars, og það var nátturulega bara æðislegt, var reyndar pínku erfitt þar sem við vorum nátturulega ný búin að fá fréttirnar um að hún Þórhildur Nótt væri lasin og allt var svoldið í lausu lofti, við vorum dugleg að reyna dreyfa huganum og fórum td á froskaveiða, krabbaveiðar, fórum í sumarbústað til Önnu (systur pabba )og hennar fjölsk, það var nátturulega bara æðislegt, fórum með þeim í rander regnskov, og á ströndina uu og auðvitað í smá verslunnarleiðanagu,Saklaus
Við fórum svo auðvitað líka með Ingibjörgu í Lególand og alveg helling á ströndina,, . Held að skottan mín hafi bara skemmt sér alveg konunglega í þessari ferð og við vonum bara að hún komi fljótlega aftur.
Við vorum svo öll samferða til íslands enn Hafsteinn greyið varð eftir í danmerkunni,, .
ÉG fór svo beint á skagan til Diddu minnar og vá hvað það var gott að komast loksins þangað og knúsa þau, Daníel ísar fór til Helga pabba og Bergindar.
Mér fannst sko æðislegt að fá að hjálpa steinunni og Jóni Gunnari í sumar, veit ekki hversu mikið gagn ég hef gert enn allvega var bara æði að geta verið með þeim og fá að sjá littlu lúsina mína hana Þórhildi Nótt á hverjum degi. Að fá að fara með þeim út að labba, sitja og spjalla um allt milli himins og jarðar, láta Þórhildi halda í frænku putta á meðan hún sofnaði , gera með henni æfingar, kenna henni að gera AAAHHH viðfrænku, spjalla bara og hlæja. Þið vitið það þið sem hafið upplifað það að systkyni ykkar eignast börn að maður fær enhv spés tilfinningu, ég á nátturulega mitt eigið barn sem ég elska útaf lífinu, ég vissi hreynlega ekki að maður gæti borði svona tilfinningar til annars barns enn sýns eigins,.Alveg hreynt Yndislegar minningar sem aldrey verða teknar frá mér.
Þau Steinunn og Jón Gunnar tóku svo þá ákvörðun að gifta sig meðan við værum á öll á landinu (þ.e.a.s þegar Hafsteinn va kominn líka) Já þannig að með tveggja vikna fyrirvara var bara slegið upp Þílíkt glæsilegu brúðkaupi . Ég á Yndislegar vinkonu sem heyta Lína og Lilja , þær eiga brúðarkjólaleigu Línu og Lílju, Þær voru svo yndislegar að þær bara lánuðu Steinunni  hrikalega fallegan kjól endurgjalslaust, fengum líka skraut á bílinn ekkert smá sætt af þeim TAKK LÍNA OG LILJAKoss Páll Ósakar kom svo í hvítu pallíettu jakkafötunum sínum og söng og auðvitað var monica með honum með hörpuna. Á SKO EKKI TIL ORÐ YFIR ÞAÐ HVAÐ HÚN SYSTIR MÍN VAR FALLEG, og littla lúsin mín hún Þórhildur Nótt var sko hringaberi rosa dugleg. Svo var rosa fín veisla hjá tengdóinu hennar steinunnar og um kvöldið boðruðum við nánasta famelian svo saman. Held að við getum öll verið sammála um fullkominn dag.
Það var svo mikill grátur um kvöldið þegar við (ég og Hafsteinn)þurftum að fara suður aftur, við áttum nefnilega flug aftur til dk morguninn eftirþ Sver það held að ég hafi aldrey grátið ein mikið og á leiðinni frá Akranesi og inni Garðarb, úúúfff fannst svo erfitt að fara frá þeim langaði bara hafa hana Steinunni íí fanginu á mér og helst Þórhildi á milli okkar bara, jú þó að hún steinunn sé orðin gift kona að þá er hún alltaf littla systir mín sko .Ullandi æ þið vitið hvernig þetta er . Já við fjölsk sameinuðumst aftur þarna fyrir brúðkaupið, Daníel fór svo aftur og gisti síðustu nóttina hja´pabba á íslandi og svo flugum við öll saman út þarna á sunnud morgninum.
Þegar við komum svo út byrjaði rútínan bara aftur skólin hjá öllum og svona .
Það er svo búið að vera brjálað að gera hjá okkur síðan við komum út, við fórum td í útilegu rétt fyrir utan silkiborg, gistum tvær nætur og fórum við á kano og rérum rétt rúma 15 km frá RØ til den lille småfisk sem er tjaldstæði rétt fyrir utan silkiborg, OG vá hvað der hrykalega flott þarna við bara göptum, æði ,,,,snekkjur og spýttbátar við littlar bryggju svona bara í "bakgarinum" hjá húsunum og allt eftir því .
Svo er búið að vera hjá okkur miðalda festivalið aftur , Otrúlegt það er sem sagt komið ár síðan við fluttum út.!!!! svo erum við búin að fara nokkrar grill veislur og svona eitt og ýmislegt,
Jæja fer nú að fara að hætta þessu enn rúsínana í pylsu endanum er sem sagt að við erum flutt, já við vorum enhv búin að vellta þessu fyrir okkur að flytja , við bjuggum sko í geðveikri íbúð alveg niðrí bæ, kannski ekki svo barnvænt það , vorum orðin svoldið leið á þessu skuttleríi framm og til baka með Daníel því að bæði íslendku og dönsku vinir hans búa í mosanum eða í nágreninu þar í kring. Vorum búin að tala við kallinn sem sér um íbúðirnar í mosanum, bara svona að tjekka og hann sagði að jú hann væri kannskimeð íbúð ca feb/mars svo á miðvikud fyrir ca 2 vikum ákváðum við að prófa að hryngja í hann ,, veit ekki alveg afhverju, vorum svo sem ekkert að flýta okkur að fara að flytja Enn hvað haldiði jú heyrðu er með eina fyrir ykkur 1. okt UU ok ,,,þannig að við bara hoppuðum á það. fengum strax leigjendur að hinni íbúðini og svona enn þá nátturulega kom það að við þurftum að afhenda hina 1.okt . Töluðun aftur við kallin í mosanum heyrðu jú jú ekkert mál reddum því ,, enn tiil að fara ekki að lengja þetta of mikið að þá fengum við sem sagt afhennt á föstudagin síðast, erum flutt inn, búin að koma okkur fyrir og skilum hinn sennilega af okku á morgun, Já ekki lengi gert sko . Nýja heinilisfagið er sem sagt Engblomvej 67 Hlæjandi.
Ennnnn jæja já nenni bara ekki að skrifa meira núna ... bæti við þetta á morgunn lýsing á íbúðinni og svona ok ,, er alveg bara orðin hund þreytt eftir erfiða helgi,, GN meira á morgunn.
knús og kyss silja







silja ruth gunnarsdóttir
3 athugasemdir

Þetta líf,, Þetta líf

26. júlí 2008 klukkan 21:37

Hæ hæ ákvað að bara rétt að láta vita af okkur,,
 ég hef ákveðið að gera bara punkta blogg seinna um það sem við erum búin að vera að gera fram að þessu ,,, þ.e.a.s tímansem Ingibjörg systir var hjá okkur og svona.

Staðan hjá okkur í dag er þannig að ég er á íslandi,
jamm sumarplönin breytust svoldið þegar við fengum fréttirnar að hún Þórhildur Nótt væri lasin.
Við tókum þá ákvörðun að ég færi til íslands og reyndi að hjálpa þeim enhv, enn Hafsteinn varð eftir í Horsens að vinna myrkrana á milli og kemur svo til okkar 14 ágúst,,, .
 Daníel Ísar er hjá Helga pabba sínum og Berglindi þar til 17 ágúst enn þá fljúgum við öll saman svo út.
 Enn já held að ég hafi þetta ekki lengra í bili vona bara að sem flestir komi nú á fundin niður á barnaspítala á mánudagin, fundurinn byrjar kl 14:00 hann Sr Vigfús ásamt hjúkrunarfræðingi ætlar að hitta okkur niðri í andyri og fylgja okkur svo þar sem fundurinn verður.
Þetta er frábært tækifæri fyrir alla ættingja okkar vini og bara eiginlega alla sem tengjast okkur á enhv hátt til að fá upplýsingar frá fagaðilum um allt það sem er að gerast í kringum þessa littlu dömu og hennar fjölskyldu,,.
já jæja vil bara  svona í lokin minna ykkur á styrktarreikninginn og munið margt smatt gerir eitt stórt...




 Í júní síðastliðnum greindist Þórhildur Nótt Mýrdal, dóttir Steinunnar Bjargar Gunnarsdóttur og Jóns Gunnars Mýrdal með sjúkdóm er kallast Spinal Muscular Atrophy eða SMA (vista) til eru 4 flokkar af þessum sjúkdóm og er Þórhildur með flokk 1 sem er jafnframt sá hættulegasti.

 

   Hún þarf á bæði lyfjagjöf og sérfræðiþjónustu að halda svo ekki sé minnst á tækjabúnað.  Þetta kostar allt peninga og mikla umönnun beggja foreldra sem munu væntanlega þurfa að vera töluvert frá vinnu.

  Viljum við því biðja alla sem eru aflögufærir að styrkja hana og fjölskyldu hennar með frjálsum fjárframlögum.

  Söfnunarreikningur Þórhildar er:  1118-05-250052 kt: 120856-7589

Steinunn er dóttir Jónu Júlíu og Gunnars Óla
  Munum svo að margt smátt gerir eitt stórt.

Viljið þið vera svo væn að copy/paste þennan texta yfir á ykkar bloggsíðu svo að þetta berist sem flestum.

Frekari upplýsingar um sjúkdóminn:  http://www.fsma.ci.is/

silja ruth gunnarsdóttir
2 athugasemdir

Búið að vera mikið að gera

02. júlí 2008 klukkan 20:59

Já nei,,, er ekki alveg hætt, það er bara búið að vera svo hrikalega mikið að gera hjá okkur. Reyndar bæði gott og slæmt enn svona er það nú.
Já ég fór sem sagt til Íslands og ferðin var bara æði í alla staði . Best var þó að fá að kynnast henni Þórhildi minni,elsku littla frænku lúsin, svo var æði að fá að knúsa systur mínar, mömmu og pabba og svo hana Þórunni mína líka.
Nenni ekki alveg að skrifa um alla ferðina geri það kannski seinna enhv tíma .þegar ég fer að rifja upp allskonar enhv.
 Enn já ok ,, svo kom ég aftur heim og þá var það bara skólinn á fullt,, og verð nú að viðurkenna að það var svoldið erfitt að byrja aftur því að það  breyttist enhv og það sem átti að kenna þegar ég kæmi aftur heim var kennt á meðan ég var i fríi þannig að ég þurfti að vinna það allt upp Öskrandi enn það hafðist.
Svo voru það bara próf,,, get nú ekki sagt að mér hafi fundist það gaman að sitja inni að læra meðan það voru ca 30° úti, þannig að jú það var stundum kíkt á ströndina með bækurnar heheh svona aðeins til málamiðlunnar held ég Ullandi. ÉG náði svo nátturuleg prófunum, og bara nokkuð sátt með mig sko ekkert undir 10.
HMMM  ástandið hjá honum Hafsteini mínum, á ,meðan ég var á Íslandi,,þeir feðgar voru bara einir heima einn laugard,, og akkurat þennan laugard var Daníel boðið í 3 afmæli HAHAHASvalur jú og hvað haldiði ekki ! súper pabbinn reddaði þessu sko alveg ,, bara minnsta málið ,, skipulagði svo rosa vel hvað hann Daníel ætti að vera lengi hvar, sko til að ná öllum.
Svo var hann rosa sniðugur að setja Jón Gunnar hennar Binnu síðastana á listan,, Hafsteinn þekkir hana nefnilega, þannig að þar gat hann bara sest niður og étið eftir anna sama dag HAHAHAHAHA
Hann Hafsteinn var nú reyndar ekki svo heppin eins og ég að geta farið út að læra fyrir prófin,,
 Hann var sko bundinn inni við teikniborðið í þessum geðveika hita,,enn það skilaði sér líka og þessi elska fékk sko 7,. Er sko alveg hrikalega stollt af honum.
7 er 8.5 í íslenska skalanum.
 ógeðslega flott hjá honum,,
Svo kláraði Daníel sinn skóla og fékk að fara í smá skólaferðalag til århus og svona.
 Hann Daníel minn er svo sætur að han fékk sko 50 dk með sér til að kaupa enhv slik, nei krakkinn kom heim með gjöf fyrir mömmu og pabba Kosssvo sætur. Hann er svo búin að eiga pínku erfitt núna greyið,, já hann er sko farin að sakna pabbi síns rosa mikið ,, hann er að fara til hans núna 18. júlí og því meira sem styttist í það því erfiðar verður þetta... já við erum sko búin að gera samning að það líður aldrey svona langt á milli aftur .. það eru jú komnir 7 mánuðir síðan hann hitti hann síðast,, svoldið erfitt fyrir 8 ára pjakk....


Annars er það að frétta að fyrirhugaðari ferð mömmu,pabba og 'Ingibjörgu hingað til okkar var skyndilega frestað þegar við fengum þær frétti á fimmtud að Þórhildur okkar væri lasin, Littlu frænku lúsin mín,,,
Sú ákvörðun var tekin að hún Ingibjörg kæmi bara ein og við myndum aðeins dreyfa huganum hjá henni og þá gætu mamma og pabbi líka frekar einbeitt sér að steinunni, Jóni Gunnari og Littlu skottunni henni Þórhildi Nótt.
Ingibjörg kom svo hingað til okkar seinnt á föstudagskvöldið þreytt enn sæl með ferðalagið ,,,, gerða söguna henar ætla ég svo að skrifa hérna eftir helgi


Ég er svo að vonast til að ég komist til Íslands bara á sama tíma og Ingibjörg og Daníel fara þangað,, .Það er alveg hrikalaeg erfitt að vera hérna út í heimi og geta ekki verið hjá henni systur sinni og fjölsk hennar þegar svona stendur á .....
ég tók þá ákvörðun að skrifa ekkert nánar um veikindin hennar Þórhildar hér inn þar sem ég hef ekki ennþá læst síðunni.. Enn þið meigið sko vita að þetta littla gull er sko algjör hetja,, og ég sver það að ég vissi hreynlega ekki að það væri hægt að elska annað barn svona eins og sitt eigið. Alveg óendanleg ást sem ég ber til þessarar littlu snúllu,, littlu frænku lús eins og ég kalla hana alltaf... Og alveg er það ótrulegt hvað þau eru dugleg Steinunn og Jón Gunnar,,, þau eru sko mín idol,, alveg dáist aðþeim,,,,,,,,,,,,,,,

Enn ég vil endilega biðja ykkur að hjálpa okkur að biðja fyrir henni og veita foreldrum hennar þann styrk sem þau þurfa til að geta hjálpa gullinu sínu,,,,,
,
meira eftir helgi ,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,

silja ruth gunnarsdóttir
4 athugasemdir

Lesiði vel

05. júní 2008 klukkan 10:54

Ég sá þetta inná síðunni hennar Huldu Sím, tók mér bara það bessa leyfi að fá þetta lánað enda er þetta enhv sem snertir okkur öll á enhv hátt,. Ég og mín fjölsk erum búin að leggja okkar af mörkum og vonum að þið sjáið ykkur fært að gera slíkt hið sama


Kæru vinir
Mig langar að segja ykkur frá óvæntum aðstæðum sem vinafólk mitt lenti í og vita hvort þið séuð aflögufær til að hjálpa þeim eins og við Sindri ætlum að gera.
Þannig er mál með vexti að vinur minn einn Björgvin Björgvinsson lést í síðustu viku og fer útförin hans fram á morgun föstudag kl.13 í Grafarvogskirkju.
Þegar Sigrún Maggý og Aldís Jóna (dóttir Björgvins - jafngamlar) voru litlar (ætli það séu ekki ein 4-5 ár síðan) þá fékk hann blett á bakið sem hann lét fjarlægja.  Í ljós kom að þetta var sortuæxli.  Við vorum 3 vinapör nýlega farin að halda heimili og nýbúin að eignast okkar fyrstu börn.  Maður fór að spá hvort maður ætti að taka frá pening frá mjög svo dýru heimilishaldi og nota í tryggingar – jú maður veit aldrei.   Við vinirnir fórum á stúfana og tryggðum okkur öll.  Öll nema Björgvin því hann fékk sig hvergi tryggðan.  Eins lítill og saklaus og bletturinn var þá fannst okkur svo fáránlegt að hann skyldi ekki fá sjúkdóma eða líftryggingu.
Núna fyrir einhverjum 8 vikum (+/- 1-2 vikur !) þurfti hann að leita til læknis vegna eymsla og niðurstöður komu öllum að óvörum.  Þau sýndu að hann var með mein í maga, í ristli og svo í lungum og í höfði.  Hann fór í meðferð eins og eðlilegt er en sortuæxli skilst mér að sé eitt af óútreiknanlegu krabbameinunum sem maður veit í raun aldrei hvar poppar upp næst.
Á mánudaginn í síðustu viku var þeim tilkynnt hann ætti einungis fáa daga eftir ólifaða.  Þau Björgvin og Telma giftu sig þann daginn.  Hann féll svo í dá og lést rúmum einum og hálfum sólarhring síðar.  Björgvin var einungis 32 ára og kallaður burt í blóma lífsins.  Hann var fyrirvinna fjölskyldunnar og skilur eftir sig 2 börn, Aldísi Jónu f.2001 og Sölva Leó f.2005
Mamma Telmu opnaði styrktarreikning fyrir Telmu, Aldísi Jónu og Sölva Leó.  Ef þið eruð aflögufær langar mig að biðja ykkur að leggja inná þau.
1175-05-762008 kt.130779-5149  Margt smátt gerir eitt stórt.
Mér er það mjög minnistætt að þegar Sindri slasaði sig um jólin þá voru fjölmargir sem lögðu okkur lið með því að leggja inn á reikning hjá okkur misháar upphæðir.  Þetta var gríðarlegur stuðningur í þeim erfiðleikum sem við gengum í gegnum.  Helsti léttirinn var sá að ég gat einbeitt mér að því að hjálpa Sindra og þurfti ekki að hafa áhyggjur af því að eiga ekki fyrir reikningunum um mánaðarmótin.  Eini munurinn er sá að Björgvin kemur ekki aftur en minn maður fer þó aftur í vinnu.
Ef þið bara vissuð hvernig mér líður núna, sit hér með kökk í hálsinum og tárin í augunum.  Þó við Björgvin og Telma værum ekki í daglegum samskiptum þá þótti mér afar vænt um hann og auðvitað þau öll, þau eru góðir vinir þó leiðir hafi legið í sitt hvora áttina með tímanum.
E.t.v. finnst ykkur það frekt af mér að biðja ykkur um að aðstoða fólk sem þið þekkið ekki neitt.  Ég hugsaði bara með mér – í sorginni – hvernig getur maður staðið við bakið á vinum sínum ?  Ef ég fengi 100 vini mína til að leggja 1000 kall inná þau þá myndu safnast 100 þúsund krónur.  100 þúsund krónur eru hellingur þegar fyrirvinnunni er kippt út.
Alla langar mig að biðja um að taka augnablik frá og hugsa um það hvað við eigum góða að allt í kringum okkur.
Lítið inná við og verið þakklát fyrir hverja stund sem þið eigið með fjölskyldunni og ykkar nánustu – ekki gleyma ykkur í hraða lífsins.
Reynið að njóta ferðalagsins.
Kær kveðja
Kolbrún Rakel

silja ruth gunnarsdóttir
2 athugasemdir

littla skvís skírð í dag

25. maí 2008 klukkan 22:14

Hæ hæ bara rétt að henda inn smá nenni ekki að skrifa núna enda að fara heim til dk á morgunn svo að maður þarf nú að fara að henda sér í ´háttinn,,,,,,,
Allaveg langaði bara að segja ykkur að frá því að hún littla systur dóttir mín fékk nafnið Þórhildur Nótt , og er kend við Mýrdal. OG ég fékk að vera skýrnar vottur ásamt henni Ásu systur Jóns Gunnars.
Frekar fyndið sammt hann Sigursteinn frændi var að hringja og segja okkur að hann hafi sennt sms til
 Stínu Fjelsted í dag til að láta vita af nafninu , kannski ekki frásögufærandi nema hvað að í símanum hans Sigursteins eru íslenskir stafir þið vitið þ og svona enn í síminn hennar Stínu hefur ekki íslensku stafina ,,,Stína greyið fékk sem sagt sms um að stelpan héti Vorhildur Nótt......Ullandi HAHAHAHAHA... nú eru sem sagt sennilega allir ætingjar okkir í móður ætt að reyna að sannfæra sjálfa sig um að hjú jú þetta vennst örugglega HAHAHAHAH
enn já það leiðréttis hér með .... Þórhildur Nótt er réta nafnið.
jæja bæjó í bili get ekki beðið eftir að komast heim þó að það verði auðvitað erfitt að kveðja hérna , enn elsku strakarnir mínir taka vel á móti mér þegar ég kem heim er búin að sakna þeirra alveg hrikalega mikið
kyss og kram
silja ruth

silja ruth gunnarsdóttir
1 athugasemd

já há veisla var það

18. maí 2008 klukkan 19:55

jamm illu er bestu aflokið,, vá það er sko alveg satt. Ekki misskilja mig samt segi nú bara svona sko, enn já það voru 16 skæruliðar í afmælisveislunni hans Daníels hérna í gær.Svalur
Þeir voru nú samt ósköp pprúðir greyin, smá hávaði enn meinna bara besta mál ,
annars hefði maður nú látið tékka enhv á þeim sko HAHAHA verður að vera smá fútt í þessu.
Enn já þeir voru 16, Hafsteinn bakaði 3 pizzur fyrir þá, svo var bökuð stór skúffukaka sem var skreytt með alskonar íslensku nammi,,og keyptir voru 2 kassar af gosi, þeir voru sko öflugir þessar elskur held að það hafi verið eftir ca 1 sneið af þessum 3 stóru pizzum þegar þeir voru búnir, HAHAHA ánægð með þá. Svo heyrði maður annars lagið GEÐVEIKAR PIZZUR ,,(Hafsteini fannst það nú ekkert leiðinlegt).
Svo eftir matin fóru allir út að leika nema 3 þannig við sömdum,,Hafsteinn fór ú með 13 gaura, og ég var hérna heima með 3, tók aðeins til og kláraði að setja í slikposana, hér fá nefnilega allir alltaf enhv til að taka með feim úr afmælinu.
Jæja ok Þeir komu svo til baka eftir ca 45 mín, aðeins búnir að fá útrás sáttir og sælir.
Þá var nátturulega komið að afmælissöng og köku, og vá hvað það var gaman.
þeir eru sko ekki feimnir við að synga þessir kappar, Glottandi það var sko fyrst sungið á dönsku , svo á íslensku og þegar það var búið að þá var komið svo mikið stuð að þeir sungu skólalagið sitt og bekkjarlagið líka, þegar því var lokið heyrðist í einum (á dönsku reyndar enn held að fæstir myndu skilja það ef ég skrifsði það þannig) hérna meigum við borða köku og halda svo bara áfram að syngja eftir það HAHAHA Hlæjandi bara sætt. Já við sem sagt réðumst í það að borða kökuna. Sko mér til varnar að þá var þessi kaka bökuð að ósk afmælisbarnsins, já það mátti sko ekki búa til neitt, þetta átti bara að vera svona stór kaka sem væri hægt að skera í fullt af bitum og það átti bara að vera sæukkulaði og nammi á henni,,,,,,
viðurkenni það að ég hef sennilega aldrey gert ljótari köku, HAHA Glottandienn hann var svona himinn sæll með kökuna.
 ENN já aftur að afmælinu, pjakkarnir kláruð sem sagt að borða kökuna og hurfu svo bara allir inn í herbergi skildi ekki alveg hvað var í gangi,
enn jú jú sing star keppni, Þarna sátur þeir frá 6 ára og uppí 9 ára að syngja lög með Bítlunum og Presley td, og svo enhv nýrra, enn fannst þetta bara svo frábært.
Svo eftir smá skiptist hópurinn sumir héldu áfram að syngja enn aðrir fóru í legó.
Svo fannst mér alveg ótrúlegt að á slaginu kl 14:00 var bara allt liði sótt, og auðvitað varöllum foreldrunum boðið íslenskt nammi,,,.Hlæjandi..

 já afmælið var sem sagt frá kl 11:00 til 14:00, og já það voru sko bara allir mættir kl 11 og sóttir kl 14 AHHAHA .
Mér finnst þetta reyndar alveg frábært fyrirkomulag hérna að hafa afmælið á þessu tíma,
 vildi bara að ég hefði fattað þetta sjálf fyrr hehe.
Sko með þessu hætti þá koma börnin fyrir hádegi leika sér aðeins, og fá svo hádegismat, leika aftur og fá svo smá drekku tíma,þannig að venjulegur matartími raskast ekki og ekki verið að bora svona mikið allann daginn,, það eru allir vel hvíldir, enginn þreyttur og pirraður. börnin eru svo farið heim um
 kl 14 og þá er allur dagurinn eftir bæði fyrir fjölsk afmælisbarnsins og hinna barnana og hægt að nýta daginn meira.
Sniðugt fynnst ykkur ekki.
já þarna var dagurinn sem sagt ekki búin hjá okkur, heldur bara brunað beint uppí VIA (skólinn hans Hafsteins) þar var íslendingafélagið að bjóða félagsmönnum í grísaveislu. Rosa flott hjá þeim. Tveir heilir grísir á teini og meðlæti og svona með.
Auðvitað var svo fullt af leikjum fyrir börnin og andlitsmálning og svona allskonar.
Við vorum nú reyndar nokkrar sem fórum að rifja upp gamla teygjutwist og snú snú takta,, rosa stuð HEHEEHEHEGlottandi
´Já Breki vinur Daníels kom svo heim með okkur, höfðum það rosa kósý hérna öll saman, héldu áfram með íslendinga þemað og horfðum á stellu í orlofi Ullandi
srákarnir voru svo með töfrabragða sýningu fyrir okkur eftir myndina, ekkert smá klárir.
það voru svo þreytti og mjög svo´sáttir pjakkar sem skriðu undir sæng í gærkvöldi,,, þurftu reyndar aðeins að spjalla þegar það var komið uppí ,ennnn það er nátturulega bara eðlilegt eftir svona viðburðarríkan dag,.
já jæja held að þetta sé nóg í bili, mér tókst reyndar að drepa myndvelina okkar í gær þannig að myndirnar koma ekki inn núna enn er að reyna að redda þessu þannig að þær koma fljótlega
kyss og kram

silja ruth gunnarsdóttir
3 athugasemdir